Á HLERI er útvarpsleikrit í þremur þáttum eftir leikhópinn Hlæja og gráta. Leikhópurinn hefur lagst á hlustir í Hafnarfirði og safnað saman setningum sem þau hafa heyrt ókunnugt fólk segja í almenningsrýmum. Setningunum hefur svo verið púslað saman í leikhandrit, leiklesið og tekið upp í hljóðupptökuveri Nýsköpunarsetursins við Lækinn í Hafnarfirði.
Markmið verkefnisins er að upphefja hversdagsleikann og beina athyglinni að leikhúsinu sem sífellt á sér stað í kringum okkur.
Verkefnið var unnið í júní og júlí sumarið 2026.
Hér geturðu hlustað á þættina
Á kaffihúsi Á bakkanum Í Hjartanu
Höfundar:
Daði Víðsson
Grímur Smári Hallgrímsson
Katla Yamagata
Fólk í almenningi í Hafnarfirði
Leikarar:
Baldur Björnsson
Daði Víðisson
Helga Salvör Jónsdóttir
Hólmfríður Hafliðadóttir
Killian G. E. Briansson
Kristinn Óli Haraldsson
Mímir Bjarki Pálmason
Natalía Erla Arnórsdóttir
Salka Gústafsdóttir
Um leikhópinn:
Leikhópurinn Hlæja og gráta var stofnaður árið 2022 af Grími Smára Hallgrímssyni og Kötlu Yamagata. Þá gerðu þau fimm gjörninga undir nafninu Vísdómsvélin. Árin 2023 og 2024 gerðu þau leiksýningar í Molanum í Kópavogi, þær hétu Sérðu það sem ég sé og Handaband. Því næst fór leikhópurinn að prófa sigáfram á útvarpsmiðlinum og gaf út hljóðhugleiðslur fyrir fólk sem nennir ekki að hugleiða. Hugleiðslurnar má nálgast neðar á þessari síðu. Sumarið 2026 fengu Grímur og Katla til liðs við sig nýjan meðlim, það var Daði Víðisson, og í dag samanstendur leikhópurinn af þeim þremur.
hér má skoða verkefni ársins 2025